Heiðarbraut 18, 230 Keflavík
99.900.000 Kr.
Einbýli
5 herb.
173 m2
99.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1978
Brunabótamat
90.650.000
Fasteignamat
84.500.000
Opið hús: 17. september 2025 kl. 17:30 til 18:00.

Opið hús: Heiðarbraut 18, 230 Reykjanesbær. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 17. september 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu um 175fm fimm herbergja einbýlishús á frábærum stað við Heiðarbraut í Keflavík. Eignin hefur fengið virkilega gott viðhald í gegnum árin og hefur það verið endurnýjað að mörgu leiti. Í húsinu í dag eru þrjú svefnherbergi en voru áður fjögur þar sem búið er að sameina tvö herbergi í eitt stórt, auðvelt er að breyta til baka. Eignin er virkilega vel staðsett innarlega á lóð við hliðina á grænu svæði sem tengir þrjár sjarmerandi götur. Sérlega stutt er í Heiðarskóla og Heiðarsel, einnig er stutt í helstu gönguleiðir bæjarins. 

*Búið er að endurnýja þakkant og þakjárn
*Eldhús var endurnýjað fyrir nokkrum árum
*Baðherbergi var endurnýjað fyrir nokkrum árum
*Gluggar endurnýjaðir að hluta
*Eignin hefur fengið einstaklega gott viðhald


Forstofa hefur flísar á gólfi, þar er góður fataskápur. Innangengt er í bílskúr og þvottarhús frá forstofu.
Herbergin eru þrjú í dag með parket á gólfi og fataskápum. Áður voru herbergin fjögur.
Eldhús hefur flísar á gólfi, falleg hvít innrétting með innbyggðum eldhústækjum ásamt því að gert er ráð fyrir amerískum ísskáp. Opið er inní borðstofu frá eldhúsi.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum, þar er baðkar og upphengt salerni.
Sjónvarpshol skilur að svefnherbergisgang og stofu, gengið er út á sólpall frá sjónvarpsholi.
Stofa er niðurgrafin með sjarmerandi arin. 
Bílskúrinn hefur epoxy á gólfi, innangengt er í bílskúr frá þvottahúsi.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Brynjar Guðlaugsson
Lögg. fasteignasali
s. 896-5464 eða 420-4000
[email protected]


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.