Opið hús: 16. september 2025 kl. 17:30 til 18:00.Opið hús: Dalsbraut 2, 260 Reykjanesbær, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 16. september 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Stuðlaberg fasteignasala kynnir í einkasölu 84,4 fermetra íbúð í fjölskylduvænu umhverfi við Dalsbraut 2 (íbúð 201).Um er að ræða fallega og nýlega eign við Dalshverfið í Njarðvík. Eignin var byggð árið 2022 og er á 2. hæð í lyftuhúsi með inngangi að norðanverðu og fallegum svölum að sunnanverðu. Í nágrenni eignarinnar er öll helsta þjónusta. Þ.e. leik- grunn- og tónlistarskóli, íþróttamiðstöð, sundlaug, verslun og aðeins 20 mínútna akstur er í Hafnarfjörð. Fasteignamat ársins 2026 er 58.500.000 kr.
Lýsing og skipulag eignar:Forstofa er flísalögð á gólfi með plássmiklum fataskáp.
Eldhús með vandaðri innréttingu, mjúklokun á skúffum og hurðum, innbyggðri uppþvottavél og ísskáp, innbyggðum ofni í vinnuhæð og helluborði.
Stofa og borðstofa er í björtu og opnu rými. Útgengt er á fallegar svalir að sunnanverðu frá stofu.
Hjónaherbergi er bjart með góðum og plássmiklum fataskáp.
Svefnherbergi annað svefnherbergi með fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, handklæðaofni, walk in sturtu og plássmikilli og snyrtilegri innréttingu. Þvottaaðstaða er innan baðherbergis með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gluggi er á baðherbergi.
Geymsla fylgir eigninni og einnig er sameiginleg hjólageymsla fyrir sameignina.
Svalir 8.3 fermetra svalir eru að sunnanverðu.
Bílastæði eru sérmerkt fyrir hverja íbúð.
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til Stuðlaberg fasteignasölu er kr. 59.000 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Stuðlaberg fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Allar nánari upplýsingar veitir:Rúnar Júlíusson
Aðstm. fasteignasala
s. 862-7947 eða 420-4000
[email protected]
-
Brynjar Guðlaugsson
Lögg. fasteignasali
s. 896-5464 eða 420-4000
[email protected]