Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu 160.7fm fimm herbergja einbýlishús á einni hæð ásamt innbyggðum 49.5fm bílskúr.
Birt stærð eignarinnar er 210.2fm.Forstofa er flísalögð og þar er góður skápur.
Hol er flísalagt.
Stofa er flísalögð og hurð er út á afgirta verönd frá stofu.
Í eldhúsi eru flísar á gólfi, þar er vegleg eikar-innrétting með flísum á milli skápa, ofn, helluborð og vifta.
Á baðherbergi eru flísar bæði á gólfi og á veggjum, þar er góð eikar-innrétting, upphengt salerni, baðkar og flísalögð sturtuaðstaða stúkuð af með gleri.
Svefnherbergin eru fjögur og eru þau öll mjög rúmgóð, parket er á gólfum og skápar eru í öllum herbergjum. Baðherbergi er inn af hjónaherbergi.
Í þvottahúsi eru flísar á gólfi, þar er góð hvít innrétting með góðu skápaplássi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, skolvaskur í borði og hurð út á lóð.
*Hiti er í öllum gólfum hússins.
*Fullbúið baðherbergi er inn af hjónaherbergi með innréttingu og sturtuaðstöðu.
*Bílskúr er flísalagður og innangengt er í hann í gegnum þvottahús. Háaloft er yfir hluta bílskúrs.
*Húsið er klætt að utan með gráu báruáli en við anddyri er búið að klæða veggi með Lerkivið.
*Innkeyrsla er hellulögð og með hitalögn og lóðin er grasilögð.
*Verönd er afgirt og þar er heitur pottur.
Nánari upplýsingar um eignina veitir:
Halldór Magnússon lfs
s: 420-4000 / 863-4495
[email protected]