Stuðlaberg fasteignasala kynnir í einkasölu 173.70 m2 parhús á tveimur hæðum þar af 20,5 m2 bílskúrs við Túngötu 19a í Keflavík.
Eignin stendur á eignarlóð.Nánari lýsing neðri hæð:Forstofa með flísum á gólfi.
Eldhús hefur parket á gólfi. Þar er viðarinnrétting með flísum á milli skápa ásamt tækjum.
Stofa og
borðstofa með parketi á gólfi.
Sólskáli með parket á gólfi. Þar inn af er lítið rými sem hægt væri að nýta sem fataherbergi og einnig er salerni með sturtu inn af rýminu. Útgengt í yfirbyggðan heitan pott.
Herbergi með parketi á gólfi.
Salerni með flísum á gólfi.
Þvottahús með flísum á gólfi og hillum.
Undir
stiga er rými þar sem útgengt er á verönd.
Nánari lýsing efri hæð:Hol með parketi á gólfi.
Herbergin eru tvö og í öðru þeirra eru innbyggðar hillur. Parket á gólfum.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum. Lítil hvít innrétting, baðkar með sturtu.
Bílskúr er óeinangraður, þar er rafmagn, hillur og hurðaopnari.
Allar nánari upplýsingar veita:
Haraldur Guðmundsson
Lögg. fasteignasali
S. 661-9391 eða 420-4000
[email protected]