Suðurgata, 230 Keflavík
Sjá allar myndir stórar (4)Verð: 17.600.000 Tegund: Fjölbýli Stærð: 121fm Herbergi: 4
LÝSING
Stuðlaberg Fasteignasala kynnir 122fm fjögurra herbergja íbúð á neðstu hæð í þríbýli í Keflavík.
Eignin fæst gegn yfirtöku láns auk greiðslu kostnaðar! Greiðslybyrði er ca. 80þús pr. mán. Vextir 4.45%.
Eignin skiptist í forstofu, forstofusalerni, hol, geymslu, eldhús, baðherbergi, stofu og þrjú svefnherbergi ásamt sameiginlegu þvottahúsi. Íbúðin hefur talsvert verið endurnýjuð síðustu árin. Bæði baðherbergin hafa verið endurnýjuð og flísalögð í hólf og gólf og á stærra baðherberginu er ný innrétting og sturtuklefi ásamt tækjum. Flísar eur á stofugólfi og parket er á öllum þremur herbergjunum. Í eldhúsi er einnig nýleg innrétting ásamt tækjum og þar eru nýjar flísar á gólfi. Búið er að endurnýja neyslulagnir, skolplagnir og raflagnir ásamt öllum rofum og tenglum. Þá er búið að endurnýja alla glugga og allar innihurðir eru nýjar í íbúðinni.
Nánari upplýsingar veita Sölumenn Stuðlabergs í síma 420-4000 eða á skrifstofu að Hafnargötu 20.