Guðlaugur H. Guðlaugsson

Löggiltur fasteignasali

Sími

420 4000

Hafnargata 20

" Fasteignasala Torg kynnir"

Melavegur, 260 Njarðvík

Sjá allar myndir stórar (26)

Verð: 45.000.000 Tegund: Einbýli Stærð: 213fm Herbergi: 5

LÝSING


Stuðlaberg Fasteignasala kynnir glæsilegt 170.8fm steypt einbýlishús á einni hæð ásamt innbyggðum 42.7fm bílskúr, samtals 213.5fm.

Flísar eru á gólfi í forstofu og þar er góður skápur. Inn af forstofu er parketlagt herbergi og flísalagt forstofusalerni. Miðrými hússins er rúmgott og er það flísalagt og notað sem sjónvarpshol. Hurð er út á verönd frá holi. Parket er á öllum herbergjunum, fataherbergi er inn af hjónaherbergi og skápar eru í hinum þremur. Gegnheilt parket er á stofugólfi, arinn er í stofu og hurð er út á verönd frá stofu. Í eldhúsi eru flísar á gólfi, þar er falleg kirsuberja-innrétting með flísum og stálplötu milli skápa, helluborð, ofn og vifta. Á baðherbergi eru flísar bæði á gólfi og á veggjum, þar er góð innrétting, hornbaðkar, flísalagður sturtuklefi, handklæðaofn og vegghengt salerni. Hiti er í gólfi á baðherbergi sjónvarpsholi og í eldhúsi. Í þvottahúsi er góð hvít innrétting með skolvask í borði og hurð er út á lóð frá þvottahúsi. 
Bílskúr er fullbúinn, þar er stór bílskúrshurð og hátt til lofts. Innangengt í bílskúr frá holi.
Allar innréttingar eru sérsmíðaðar frá RH-innréttingum og mjög hátt er til lofts í flestum rýmum eignarinnar. Um 20fm geymslurými eru á milliloftum í bílskúr og yfir forstofuherbergi. Í tveimur barnaherbergjum hefur lofthæð einnig verið nýtt og útbúið skemmtilegt leikloft.
Mjög falleg lóð er umhverfis húsið, grasilögð og að hluta hellulögð og góð afgirt verönd er á lóð með heitum potti. Um 6fm upphitað og frágengið dúkkuhús, geymsluhús  er einnig á baklóð.

Allar nánari upplýsingar veita sölumenn Stuðlabergs í síma 420-4000 eða á skrifstofu að Hafnargötu 20.

Til baka

UPPLÝSINGAR

  • Verð:
    45.000.000
  • Stærð:
    213
  • Fasteignamat:
    32.450.000
  • Brunabótamat:
    53.970.000
  • Byggingaár:
    1998

  • Herbergi:
    5
  • Svefnherbergi:
    4
  • Baðherbergi:
    2
  • Stofur:
    1
  • Bílskúr:
    1
Senda fyrirspurn
Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd