Stuðlaberg Fasteignasala kynnir þriggja herbergja 100m² efri hæð í tvíbýli ásamt 38m² bílskúr.
Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, baðherbergi, stofu, geymslu og tvö herbergi. Flísar eru á forstofu, steyptur teppalagður stigi og flísar eru á stigapalli. Flísar eru á gólfi á holi. Í eldhúsi eru flísar á gólfi og þar er nýleg innrétting ásamt tækjum. Parket er á stofugólfi og hurð er út á svalir frá stofu. Flísar eru bæði á gólfi og veggjum á baðherbergi, þar er sturtuklefi og aðstaða fyrir þvottavél. (Baðherbergi er allt nýlega endurnýjað ). Parket er á gólfum í herbergjum og skápur er í öðru herberginu. Háaloft yfir allri íbúðinni, manngengt að hluta. Í bílskúr er bæði hiti og rafmagn, hann er óeinangraður en einangrun er til í loft og fylgir með. Nýtt þakjárn er á húsinu og búið er að endurnýja flestalla glugga.
Hagstæð lán eru áhvílandi frá ÍLS og Landsbankanum!- Greiðslubyrði pr. mán um 80þús! Eignin fæst gegn yfirtöku lána+kostnaður! Góð kaup!
Nánari upplýsingar um eignina veita sölumenn Stuðlabergs í síma 420-4000 eða á skrifstofu á Hafnargötu 20.
Eign skráð: 25. janúar 2012
Síðast breytt: 25. janúar 2012
Eign skoðuð: 5