Stuðlaberg Fasteignasala kynnir nýlegt 3ja herbergja 90fm steypt parhús á einni hæð.Eignin skiptist í forstofu, hol, þvottahús, stofu, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Flísar eru á forstofugólfi og þar er góður skápur. Inn af forstofu er þvottahús með hvítri innréttingu og hillum á veggjum. Loftastigi upp á háaloft er frá þvottahúsi en háaloft er yfir mestöllu húsnæðinu. Parket er á holi og stofu og hurð er út á verönd frá stofu. Flísaparket er á gólfi í eldhúsi, þar er hvít innrétting með flísum á milli skápa, helluborð, ofn og vifta. Á baðherbergi eru flísar á gólfi og viðarinnrétting, flísar eru á veggjum í kringum baðkar. Parket er á báðum herbergjunum og eru skápar í báðum herbergjum.
Mjög góð afgirt timburverönd er á lóð með heitum potti og litlum geymsluskúr. Lóðin er grasilögð og eignin er vel staðsett innst í botngötu í nýlegu hverfi.
Nánari upplýsingar veita sölumenn Stuðlabergs í síma 420-4000 eða á skrifstofu að Hafnargötu 20.
Eign skráð: 24. janúar 2012
Síðast breytt: 24. janúar 2012
Eign skoðuð: 7