3ja herbergja íbúð á neðri hæð með sérinngangi.
Eignin skiptist í forstofu, hol, þvottahús, geymslu, eldhús, baðherbergi, stofu og tvö svefnherbegi. Flísar eru á gólfi í forstofu og þar er góður skápur. Inn af forstofu er flisalagt þvottahús og geymsla þar inn af. Í eldhúsi eru flísar á gólfi, þar er falleg eikar-innrétting með flísum á milli skápa, helluborð, ofn og vifta. Á baðherbergi er einnig eikar-innrétting, þar eru flísar á gólfi og á veggjum, baðkar og handklæðaofn. Parket er á gólfum í báðum herbergjunum og skápar eru í þeimbáðum. Parket er á stofugólfi og hurð er út á baklóð frá stofu. Allar innréttingar, parket, skápar og innihurðir eru úr eik.
Eignin fæst gegn yfirtöku láns frá ÍLS. Vextir 4.7%. Greiðslubyrði 97þús pr. mán.Allar nánari upplýsingar veita sölumenn Stuðlabergs í síma 420-4000 eða á skrifstofu að Hafnargötu 20.
Eign skráð: 23. janúar 2012
Síðast breytt: 24. janúar 2012
Eign skoðuð: 4