Túngata, 230 Keflavík
-
-
-
- Tegund: Einbýli
- Stærð: 226
- Fasteignamat: 19.700.000
- Brunabótamat: 35.440.000
- Áhvílandi: 0
- Herbergi: 6
- Svefnherbergi: 4
- Baðherbergi: 1
- Stofur: 2
- Þvottahús:
- Bílskúr: 1
- Geymsla:
Verð: 28.500.000
Stuðlaberg Fasteignasala kynnir 193,7m² einbýlishús á þremur hæðum ásamt 33m² bílskúr....Forstofa er flísalögð og þar er hengi. Frá forstofu er gengið inn í lítið hol og út frá holi er forstofuherbergi, stofa og eldhús. Hvít innrétting er í eldhúsi, eldavél og vifta og viðarþiljur þar á gólfi. Eldhús tengist borðstofu og inn af borðstofu er svo stofa. Út frá borðstofu er svalahurð þar sem gengið er niður í garð. Í risi, sem er nokkuð rúmgott, eru þrjú svefnherbergi og gott baðherbergi. Allt er nýlegt á baðherberginu. Í kjallara hússins er svo þvottahús í hluta en búið er að útbúa einstaklingíbúð í hluta kjallarans sem leigð er út. Þar er eldhús, baðherbergi og stórt herbergi/stofa. Bílskúr er fullbúinn, þar er bæði hiti og rafmagn, heitt og kalt vatn, hann er einangraður og klæddur og nýjar hurðir eru í skúr. Flestir gluggar eru nýjir í húsinu og allt gler er nýtt. Þá eru einnig allar útidyrahurðir nýjar og þakjárn er nýlegt á húsinu. Innkeyrsla er nokkuð stór og er hún hellulögð. Afar fallegur garður er á baklóð í mikilli og góðri rækt.
Allar nánari upplýsingar veita sölumenn Stuðlabergs í síma 420-4000 eða á skrifstofu að Hafnargötu 29.
Eign skráð: 04. júní 2010
Síðast breytt: 16. júní 2011
Eign skoðuð: 458