Stuðlaberg Fasteignasala kynnir 3ja herbergja 81,8fm íbúð á 3ju hæð í fjölbýli.Nýjar flísar eru á forstofugólfi og þar er hengi. Parket er á holi og stofu og hurð er út á svalir frá stofu. Marmarakorkur er á eldhúsgólfi, þar er nýleg beyki-innrétting með flísum á milli skápa og dökkum borðplötum, helluborð, ofn og vifta. Allt er nýlegt í eldhúsi. Parket er á gangi og í herbergjum og skápur er í öðru herberginu. Á baðherbergi eru flísar á gólfi og á veggjum kringum baðkar, þar er nýleg eikarinnrétting og innaf baðherbergi er flísalagt þvottahús. Lítil geymsla er á gangi með hillum á vegg.
Búið er að endurnýja neylsulagnir í húsinu, gluggar í stofu eru nýjir og þakjárn er nýlegt. Allt er nýlegt í eldhúsi og á baðherbergi og nýlegt parket er á herbergjum.
Falleg og snyrtileg eign í alla staði.
Nánari upplýsingar gefa sölumenn Stuðlabergs ehf í síma 420-400 eða á skrifstofu að Hafnargötu 29.
Eign skráð: 16. apríl 2010
Síðast breytt: 05. nóvember 2010
Eign skoðuð: 279