Túngata, 230 Keflavík
-
-
-
- Tegund: Fjölbýli
- Stærð: 313
- Fasteignamat: 42.750.000
- Brunabótamat: 55.300.000
- Áhvílandi: 0
- Herbergi: 0
- Svefnherbergi: 0
- Baðherbergi: 0
- Stofur: 0
- Þvottahús:
- Bílskúr: nei
- Geymsla:
Verð: 53.000.000Stuðlaberg Fasteignasala kynnir veglegt fjögurra íbúða hús í gamla bænum í Keflavík.
Húsið skiptist í fjórar íbúðir. Á neðstu hæð eru tvær einstaklingsíbúðir(önnur um 60fm en hin ca. 55fm). Íbúðirnar eru báðar með einu svefnherbergi, eldhúskrók, stofu og baðherbergi. Íbúðirnar voru báðar standsettar árið 2005 og eru þær í góðu ástandi.
Á miðhæð hússins er stór og rúmgóð 3ja herbergja íbúð. Hjónaherbergi er mjög stórt og rúmgott með góðum fataskápum, eldhús er með nýlegri innréttingu, barnaherbergi er frekar lítið, góð forstofa, stofa og borðstofa. Parket er á stofu og borðstofu og á herbergjum en flísar eru á baðherbergi.
Á efstu hæð hússins er mjög falleg og nýlega innréttuð 3ja herbergja íbúð. Tvö góð svefnherbergi eru í íbúðinni, stofa og eldhús með glæsilegri innréttingu, baðherbergi með nýlegri innréttingu og sturtu. Parket er á öllum gólfum í íbúðinni nema á baðherbergi. Húsið er í mjög góðu standi að utan, nýlega málað og flestir gluggar hafa verið endurnýjaðir. Járn á þaki er þó orðið lélegt og þarfnast endurnýjunar við. Frábær staðsetning í miðbæ Keflavíkur. Húsið er allt í útleigu og eru leigutekjur um 300þús á mánuði.
Eign skráð: 04. febrúar 2010
Síðast breytt: 04. febrúar 2010
Eign skoðuð: 273