Norðurgarður, 230 Keflavík
-
-
-
- Tegund: Einbýli
- Stærð: 172
- Fasteignamat: 26.700.000
- Brunabótamat: 34.870.000
- Áhvílandi: 0
- Herbergi: 6
- Svefnherbergi: 5
- Baðherbergi: 2
- Stofur: 2
- Þvottahús:
- Bílskúr: 1
- Geymsla:
Verð: 33.000.000Stuðlaberg Fasteignasal kynnir fimm til sex herbergja 141fm steypt einbýlishús ásamt 32fm bílskúr.
Eignin skiptist í forstofu, forstofuherbergi, hol, eldhús, baðherbergi, þvottahús, svefnherbergisgang og fjögur-fimm herbergi. Flísar á forstofugólfi og innaf af forstofu er lítið parketlagt forstofuherbergi. Parket er á gólfi í holi og borðstofu en stofan er flísalögð og er hún niðurgrafin um eitt þrep. Hurð er út á afgirta verönd frá borðstofu. Í eldhúsi eru korkflísar á gólfi, þar er ný eikar-innrétting ásamt tækjum, helluborð, ofn og háfur. Allt er nýtt í eldhúsi. Flísar eru á gólfi og veggjum á baðherbergi, þar er lítil innrétting, sturta og baðkar. Flísar eru á gólfi í þvottahúsi og þaðan er hurð út á plan og einnig er búið að útbúa gott herbergi inn af þvottahúsi. Parket er á svefnherbergisgangi og þar er skápur. Parket er á gólfum í hinum þremur herbergjunum og er skápur í einu þeirra. Hurð er út á verönd frá hjónaherbergi. Öll gólfefni í húsinu eru ný eða nýleg. Nýleg afgirt timburverönd er á baklóð með heitum potti og lóðin er öll í rækt og afgirt. Hiti er í bílskúr og þar er hurðaopnari. Kjallari er undir öllum bílskúrnum með nánast fullri lofthæð svo í raun er flatarmál skúrsins um 64fm. Steypt loftplata er í húsinu og forhitari er á miðstöðvarkerfi. Nýtt þakjárn er á húsinu sem og nýr þakkantur. Flott eign á góðum stað í afar snyrtilegri götu nærri skóla, leikskóla og verslun.Eign skráð: 02. febrúar 2010
Síðast breytt: 10. febrúar 2010
Eign skoðuð: 940