Stuðlaberg Fasteignasala kynnir 152,2fm raðhús á tveimur hæðum ásamt 29,1fm innbyggðum bílskúr. Á neðri hæð er forstofa, hol, salerni, stofa/borðstofa, eldhús og þvottahús ásamt bílskúrnum og geymslu en á efri hæð eru þrjú til fjögur herbergi og baðherbergi. Flísar eru á gólfi í forstofu og þar er skápur. Hol er einnig flísalagt sem og stofa og borðstofa og hurð er út á verönd frá stofu. Eldhús hefur nýlega allt verið endurnýjað, þar eru flísar á gólfi, ný hvít innrétting með dökkum borðplötum og flísum á milli skápa, ofn, helluborð og vifta. Á baðherbergi á neðri hæð er einnig allt nýtt en það er flísalagt og þar er vegghengt salerni. Inn af eldhúsi er dúklagt þvottahús með hillum á vegg og innangengt er í bílskúr gegnum þvottahús. Geymsla er innst í skúrnum og hurð út á verönd. Parket er á öllum fjórum svefnherbergjunum og er skápur í einu þeirra. Búið er að sameina tvö herbergjanna í eitt stórt. Á baðherbergi er dúkur á gólfi, flísar á veggjum, ljós viðarinnrétting, baðkar, flísalagður sturtuklefi og gluggi.
Parket er á holi sem notað er sem sjónvarpshol og þaðan er hurð út á stórar svalir. Innkeyrlsa er steypt og á baklóð er stór og góð afgirt timburverönd og afgirtur garður. Búið er að endurnýja nánast alla glugga í húsinu sem og útidyrahurð og bílskúrshurð. Þá eru öll gólfefni á neðri hæð ný og allt er nýtt í eldhúsi og á baðherbergi á neðri hæð.
Eign skráð: 08. janúar 2010
Síðast breytt: 09. desember 2011
Eign skoðuð: 564