Stuðlaberg Fasteignasala kynnir 3ja herbergja tæplega 88fm íbúð á neðri hæð í tvíbýli.Eignin hefur sérinngang og skiptist í forstofu, þvottahús/geymslu, hol, stofu, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Nýjar flísar eru á forstofu og þar er hengi. Inn af forstofu er svo þvottahús og geymsla, þar eru nýjar flísar á gólfi og ný innrétting, hillur á veggjum og hurð út á baklóð. Hol er parketlagt. Í eldhúsi er parket á gólfi, þar er beyki-innrétting með flísum á milli skápa, eldavél og vifta. Stofa er parketlögð. Parket er einnig á báðumsvefnherbergjunum og er góður kápur í öðru þeirra. Á baðherbergi eru flísar á gólfi og á veggjum hjá baðkari, þar er sprautuð nýleg innrétting og skápur, baðkar og gluggi. allir gluggar á suðurhlið hússins eru nýjir ásamt sólbekkjum og einng eru neyslulagnir nýjar en þær voru endurnýjaðað árið 2005. Húsið var málað að utan árið 2009.
Eign skráð: 19. nóvember 2009
Síðast breytt: 05. nóvember 2010
Eign skoðuð: 1573