Til baka

Austurgata, 230 Keflavík

  • Tegund: Einbýli
  • Stærð: 283
  • Fasteignamat: 34.725.000
  • Brunabótamat: 54.970.000
  • Áhvílandi: 14.588.011
  • Herbergi: 10
  • Svefnherbergi: 9
  • Baðherbergi: 3
  • Stofur: 1
  • Þvottahús:
  • Bílskúr: nei
  • Geymsla:
Verð: 0

Stuðlaberg Fasteignasala kynnir 311,7fm steypt einbýlishús á tveimur hæðum, þar af er bílskúr um  27,8fm.

Um er að ræða stórt og mikið einbýlishús á tveimur hæðum þar sem á neðri hæðinni hefur verið rekið gistiheimili undanfarin ár. Sérinngangur er í neðri hæðina og þar eru sex svefnherbergi og einnig er þar eldhúsaðstaða, tvö baðherbergi og gott hol/setustofa. Parket er á öllum gólfum nema á baðherbergjunum sem eru flísalögð í hólf og gólf og einnig eru flísar á gólfi í eldhúsaðstöðunni. Einnig er innangengt á milli hæða og er steyptur flísalagður stigi upp á efri hæðina.
Efri hæðin skiptist svo í forstofu, hol, eldhús, stóra stofu og borðstofu, baðherbergi og þrjú svefnherbergi ásamt bílskúrnum.  Forstofa er flísalögð og inn af forsofu er lítið forstofusalerni sem notað er sem fatageymsla í dag. Í eldhúsi eru flísar á gólfi, góð innrétting með granít borðplötum, helluborð, ofn og háfur. Stofan er mjög stór og er hún parketlögð að mestu en einnig er lítill   hluti gólfsins flísalagður. Einnig er arinn í stofu.  Á baðherbergi eru flísar bæði á gólfi og á veggjum, þar er hvít innrétting og skápur á vegg, vegghengt salerni og baðkar.  Þrjú parketlögð herbergi eru á hæðinni og eru skápar í þeim öllum.
Öll gólfefni eru ný eða nýleg í eigninni, allir gluggar eru nýjir og forhitari er á miðstöðvarlögn.  Pottofnar eru í öllu húsinu og búið er að endurnýja skolplagnir. Góð aðkoma er að húsinu og innkeyrsla er hellulögð með hitalögn.

Eign skráð: 28. október 2009
Síðast breytt: 28. október 2009

Eign skoðuð: 1950