Stuðlaberg Fasteignasala kynnir 4ra herbergja 105m² íbúð á neðri hæð í fjórbýli.
Eignin skiptist í forstofu, hol, þvottahús, stofu, eldhús, baðherbergi, geymslu og þrjú svefnherbergi. Eignin hefur sérinngang og er öll í nokkuð góðu ástandi. Forstofa er flísalögð og þar er góður skápur. Parket er á gólfi bæði í stofu og í holi og skápur er einnig í holi. Í eldhúsi er parket á gólfi, þar er hvít innrétting með beyki köntum og hvítum borðplötum, eldavél og vifta. Inn af eldhúsi er þvottahús, þar er dúkur á gólfi, hillur á veggjum og gluggi. Á baðherbergi eru flísar bæði á gólfi og á veggjum, þar er ný innrétting, góður sturtuklefi og gluggi. Allt er nýtt á baðherbergi. Dúkur er á gólfum í tveimur herbergjanna og eru skápar í þeim báðum en parket er á því þriðja. Einnig er í íbúðinni góð dúklögð geymsla með hillum á veggjum og einnig er geymsla í sameign. Baðherbergi hefur nýlega allt verið endurnýjað og einnig er nýtt gler í gluggum á suðurhlið hússins.
Eign skráð: 14. september 2009
Síðast breytt: 05. nóvember 2010
Eign skoðuð: 391