Til baka

Austurgata, 245 Sandgerði

  • Tegund: Einbýli
  • Stærð: 281
  • Fasteignamat: 21.700.000
  • Brunabótamat: 42.710.000
  • Áhvílandi: 0
  • Herbergi: 5
  • Svefnherbergi: 4
  • Baðherbergi: 2
  • Stofur: 1
  • Þvottahús:
  • Bílskúr: 1
  • Geymsla:
Verð: 29.500.000

Stuðlaberg Fasteignasala kynnir 233,2fm einbýlishús á tveimur hæðum ásamt 24fm bílskúr.

Eignin skiptist þannig að á neðri hæð er flísalögð forstofa og teppalagður stigi upp á efri hæð en þar er teppalagður gangur og skápur. Stofa, borðstofa og sjónvarpshol með parketi á gólfi og hurð er út á svalir frá stofu. Dúkur er á gólfi í eldhúsi, þar er hvít innrétting með dökkum borðplötum og hvítum flísum á milli skápa, helluborð, ofn og vifta og einnig fylgja með bæði ísskápur og uppþvottavél. Flísar er bæði á gólfi og veggjum á baðherbergi, hvít innrétting með beyki borðplötu og baðkar. Eitt svefnherbergi er á efri hæð og þar er dúkur á gólfi og skápur. Á neðri hæð er forstofa baka til með flísum á gólfi. Flísalagður gangur og þar er góður skápur. Málað gólf er í þvottahúsi. Á baðherbergi á neðri hæð eru flísar á gólfi, hvít innrétting og sturtuklefi. Á neðri hæð eru þrjú svefnherbergi en voru áður fjögur, búið er að sameina tvö herbergi í eitt stórt. Teppi, dúkur og flísar eru á gólfum í herbergjunum. Eignin var öll endurnýjuð um 1980, þá voru t.d lagnir endurnýjaðar. Allt er nýlegt á baðherbergi og einnig í eldhúsi, innrétting ásamt tækjum. Húsið er einangrað og klætt að utan með áli.Háaloft er yfir allri hæðinni sem er gott geymsluloft.

Bílskúr er í slöku ástandi, hann er ókyntur og ekkert rafmagn.


Nánari upplýsingar um eignina veita sölumenn Stuðlabergs í síma 420-4000 eða á skrifstofu að Hafnargötu 20

 

Eign skráð: 14. september 2009
Síðast breytt: 21. júní 2011

Eign skoðuð: 1070