Arnarhraun, 240 Grindavík
-
-
-
- Tegund: Einbýli
- Stærð: 221
- Fasteignamat: 23.135.000
- Brunabótamat: 35.030.000
- Áhvílandi: 0
- Herbergi: 5
- Svefnherbergi: 4
- Baðherbergi: 2
- Stofur: 1
- Þvottahús:
- Bílskúr: 1
- Geymsla:
Verð: 25.000.000Stuðlaberg Fasteignasala kynnir fimm herbergja 196fm einbýlishús á tveimur hæðum ásamt kjallara, þar af er bílskúr um 25fm........
Forstofa er flísalögð og steyptur flísalagður stigi er frá forstofu upp á efri hæð. Einnig er í forstofu millihurð með gleri þar sem gengið er niður í kjallara. Flísar eru á gólfi í holi og þar er stór laus skápur. Á baðherbergi eru flísar á gólfi, gluggi og lítil innrétting hjá handlaug. Flísar eru einnig á gólfi í eldhúsi, þar er gömul hvít innrétting, helluborð, ofn og vifta. Flísar eru einnig á stofugólfi og í svefnherbergi. Á efri hæðinni er parket á báðum herbergjunum og á holi sem er nokkuð rúmgott. Á baðherbergi eru flísar á gólfi, upphengt salerni, baðkar og gluggi. Í kjallara er eitt gott parketlagt herbergi , flísalögð geymsla og stórt þvottahús. Þar er lítil hvít innrétting og skolvaskur í borði. Allar innihurðir í húsinu eru nýlegar, parket og flísar eru á öllum gólfum og gluggar eru í ágætu ástand sem og þakjárn og þakkantur. Búið er að klæða tvær hliðar hússins með steni-klæðningu en innkeyrsla er ófrágengin sem og lóð. bílskúrinn er frekar slakur og þarfnast endurbóta.
Nánari upplýsingar um eignina veita sölumenn Stuðlabergs í síma 420-4000 eða á skrifstofu Hafnargötu 29.
Eign skráð: 14. september 2009
Síðast breytt: 12. ágúst 2010
Eign skoðuð: 1255