Stuðlaberg Fasteignasala kynnir 4ra herbergja 116,4m² íbúð á efri hæð í tvíbýli..... Forstofa: Flísar á gólfi, teppalagður stigi upp á hæð. Lítil geymsla er uppi á stigapalli, hillur á veggjum. Nýleg millihurð m/gleri(kirsuberjaviður). Þvottahús er sameiginlegt á neðri hæð en sérinngangur ef frá hvorri íbúð. Nýleg innrétting er í eldhúsi ásamt flísum á milli skápa. Flísar eru á gólfi og á veggjum á baðherbergi, máluð innrétting, dökk borðplata, flísar á veggjum og gluggi. Lakkað steingólf er á stofu og borðstofu og hurð er út á svalir frá stofu. 1.herb: Nýlegt parket á gólfi, nýlegur skápur. 2.herb: Dúkur á gólfi. 3.herb: Dúkur á gólfi, nýlegur skápur. Háaloft er yfir allri íbúðinni, manngengt, búið að einangra hluta en á eftir að klæða. Búið er að endurnýja skolplagnir frá húsi og búið er að endurnýja raflagnir ásamt rofum og tenglum.
Eign skráð: 14. september 2009
Síðast breytt: 05. nóvember 2010
Eign skoðuð: 399