Vatnsnesvegur, 230 Keflavík
-
-
-
- Tegund: Einbýli
- Stærð: 240
- Fasteignamat: 22.750.000
- Brunabótamat: 32.290.000
- Áhvílandi: 0
- Herbergi: 6
- Svefnherbergi: 5
- Baðherbergi: 2
- Stofur: 1
- Þvottahús:
- Bílskúr: 1
- Geymsla:
Verð: 0
Stuðlaberg Fasteignasala kynnir sex herbergja 161fm einbýlishús á þremur hæðum ásamt 60fm bílskúr.......Eignin er á þremur hæðum og skiptist í forstofu, þvottahús, hol, tvö baðherbergi, stóra stofu, eldhús, geymslu og fimm svefnherbergi ásamt bílskúrnum. Forstofa er flísalögð og inn af forstofu er flísalagt þvottahús, þar eru flísar á gólfi og hurð út á baklóð. Hol er parketlagt og í eldhúsi er hvít innrétting með flísum á milli skápa, helluborð, ofn og vifta. Eldhús er nokkuð stórt og tengist stofu sem einnig er parketlögð. Á jarðhæð er einng lítið baðherbergi sem er flísalagt. Á miðhæðinni eru þrjú mjög stór svefnherbergi og eru skápar í þeim öllum, gott hol og geymsla eru einnig á hæðinni ásamt stóru baðherbergi. Á baðherberginu eru flísar bæði á gólfi og á veggjum, hvít innrétting, sturtuklefi og baðkar. Allt er nýlegt á baðherberginu. Í risinu eru tvö svefnherbergi og hol. Allt er nýtt í risinu, ný gólfefni, ný einangrun og klæðning, raflagnir og nýjir loftagluggar. Risið er ekki skrá til fasteignamats en þar er gólfflötur um 35fm. Búið er að endurnýja skolplagnir, ofnalagnir og raflagnir og neyslulagnir eru nýjar. Í bílskúr, sem er 60m²(skráður 40fm), er bæði hiti og 3ja fasa rafmagn, hurðaopnari og stórt herbergi er innst í skúrnum. Stór og mikil eign sem gefur mikla möguleika. Mjög gott verð - hagstætt áhvílandi - mjög lítil útborgun!
Eign skráð: 14. september 2009
Síðast breytt: 14. mars 2011
Eign skoðuð: 573