Til baka

Grænigarður, 230 Keflavík

  • Tegund: Einbýli
  • Stærð: 225
  • Fasteignamat: 24.000.000
  • Brunabótamat: 34.620.000
  • Áhvílandi: 0
  • Herbergi: 5
  • Svefnherbergi: 4
  • Baðherbergi: 2
  • Stofur: 2
  • Þvottahús:
  • Bílskúr: 1
  • Geymsla:
Verð: 42.800.000

  Stuðlaberg Fasteignasala kynnir fimm herbergja 194m² steypt einbýlishús á einni hæð, þar af er bílskúr um 31m²....... Forstofa er flísalögð og þar er góður skápur. Komið er inn í parketlagt hol og þaðan er gengið inn í svefnherbergisálmu sem einngi er parketlögð. Í holi er lítið baðherbergi. Flísar eru á gólfi í eldhúsi, þar er nýleg hvít innrétting m/beyki borðplötum og flísum á milli skápa, helluborð, ofn og háfur. Í þvottahúsi er málað gólf, hvít vegleg innrétting og hurð út á lóð. Stofan er mjög stór og er hún, þrískipt og er hluti hennar notaður sem sjónvarpshol. Hluti af stofu er viðbygging upp á ca. 24m² og þar er hiti í gólfi en ekki er búið að leggja þar gólfefni. Á baðherbergi eru flísar bæði á gólfi og á veggjum, innrétting, baðkar og sturta, handklæðaofn, vegghengt wc og gluggi. Allt er nýtt á baðherbergi. Parket er á gólfum í öllum fjórum svefnherbergjunum og eru skápar í þremur þeirra. Í bílskúr er bæði hiti og rafmagn og hurðaopnari, búið er að einangra skúrinn en ekki klæða og framhliðin er öll ný. Búið er að endurnýja neyslu- og ofnalagnir úr eir og forhitari er á miðstöðvarlögn. Allar innihurðir eru nýjar sem og allir gluggar og sólbekkir. Þá er þakjárn nýlegt sem og þakkantur og stór og góð afgirt verönd er á lóð með heitum potti. Innkeyrsla og stéttar eru hellulagðar og með hitalögn.

 

Eign skráð: 14. september 2009
Síðast breytt: 21. júní 2011

Eign skoðuð: 496