Til baka

Grænás, 260 Njarðvík

  • Tegund: Fjölbýli
  • Stærð: 109
  • Fasteignamat: 14.125.000
  • Brunabótamat: 0
  • Áhvílandi: 0
  • Herbergi: 5
  • Svefnherbergi: 4
  • Baðherbergi: 1
  • Stofur: 1
  • Þvottahús:
  • Bílskúr: nei
  • Geymsla:
Verð: 21.000.000

Fasteignasalan Stuðlaberg kynnir glæsilega fjögurra herbergja 109m² íbúð á annari hæð í fjölbýli........

Eignin er öll í toppstandi go hefur öll verið tekin í geng síðasta árið. Forstofa er sameiginleg, þar eru flísar á gólfi og stigi og stigagangur er dúklagður. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni, rúmgott, skolvaskur í borði og málað gólf. Flísar eru á gólfi í holi og þar er sérsmíðaður skápur. Flísar eru á eldhúsi, þar er ný viðarinnrétting, flísar á milli skápa, granít borðplötur, helluborð, ofn og háfur. Nýtt parket og flísar eru á gólfi í stofu og í sólstofu. Hurð er út á svalir frá sólstofu. Flísar eru bæði á gólfi og veggjum á baðherbergi, nýr stór skápur, vegghengt w.c. og baðkar. Parket er á herbergjum og er fataherbergi inn af hjónaherbergi og þar er uppgengt á háaloft þar sem er góð geymsla. Hiti er í gólfi í forstofu, eldhúsi og baðherbergi. Öll herbergi eru rúmgóð. Allt er nýtt í eldhúsi og á baðherbergi og einnig er búið að endurnýja alla glugga, neyslulagnir, ofna og ofnalagnir. Topp eign!

Nánari upplýsingar um eignina veita sölumenn Stuðlabergs í síma 420-4000 eða á skrifstofu.

Eign skráð: 14. september 2009
Síðast breytt: 05. nóvember 2010

Eign skoðuð: 412