Hafdalur, 260 Njarðvík
-
-
-
- Tegund: Einbýli
- Stærð: 241
- Fasteignamat: 34.050.000
- Brunabótamat: 58.770.000
- Áhvílandi: 0
- Herbergi: 5
- Svefnherbergi: 4
- Baðherbergi: 2
- Stofur: 1
- Þvottahús:
- Bílskúr: 1
- Geymsla:
Verð: 47.000.000
Stuðlaberg Fasteignasala kynnir fimm herbergja 241m² steypt einbýlishús á einni hæð, þar af er innbyggður bílskúr um 37m²......Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, borðstofu, tvö baðherbergi, þvottahús og fjögur svefnherbergi ásamt bílskúrnum. Eignin er öll hin glæsilegasta og er öll mjög rúmgóð. Flísar eru á forstofugólfi og þar er góður skápur. Flísar eru einnig bæði á gólfi og á veggjum á forstofusalerni , þar er vegghengt salerni, innrétting og sturta. Parket er bæði á stofu og borðstofu og hurð er út á lóð frá borðstofu. Flísar eru á gólfi í eldhúsi sem tengist borðstofu, þar er mjög stór og falleg eikar-innrétting ásamt eyju með granít borðplötum og veglegum tækjum, helluborð, ofn og háfur. Veggir eru flísalagðir í eldhúsi og mjög gott skápapláss er í eldhúsi ásamt góðri vinnuaðstöðu. Parket er á öllum fjórum svefnherbergjunum ásamt sjónvarpsholinu og eru skápar í öllum herbergjum. Öll herbergi eru yfir 11m² og sjónvarpsholið er einnig rúmgott. Á baðherbergi eru flisar bæði á gólfi og á veggjum, þar er góð eikar-innrétting, flísalagður sturtuklefi, baðkar, vegghengt salerni og gluggi. Í þvottahúsi er epoxy á gólfi, þar er stór innrétting og skápur og frá þvottahúsi eru hurðir bæði út á plan og út í bílskúr. Bílskúrinn er fullbúinn, þar er einnig epoxy á gólfi, hiti og rafmagn, hurðaopnari og stór bílskúrshurð og hleri er upp á háaloft frá bílskúr en háaloft er yfir stórum hluta hússins.
Hiti er í öllum gólfum, mikil lofthæð er í húsinu og allar innihurðir eru 2,30m á hæð. Næturlýsing er við gólf á svefnherbergisgangi, síma og sjónvarpstenglar eru í öllum herbergjum og þjófavarnarkerfi fylgir með húsinu. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar úr eik og allt parket er einnig úr eik.
Að utan á eftir að ganga frá þakkanti og pússa og mála húsið. Búið er að jarðvegsskipta efni í lóð svo lóðin er tilbúin undir torf og tré og undirstða er klár fyrir sólpall. Gróf möl er í innkeyrslu.
Eign skráð: 14. september 2009
Síðast breytt: 10. ágúst 2011
Eign skoðuð: 742