Heildarútlán Íbúðalánasjóðs tæpir 3 milljarðar í september.

08.10.09

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmlega 2,9 milljörðum króna í september. Þar af voru rúmir 1,8 milljarðar vegna almennra lána og tæpir 1,1 milljarðar vegna leiguíbúðalána. Heildarútlán sjóðsins jukust því um tæp 84% frá fyrra mánuði sem má að mestu rekja til aukningar í leiguíbúðalánum. Meðalútlán almennra lána voru um 10 milljónir króna í september sem er um 2% aukning frá fyrra mánuði. Heildarútlán sjóðsins námu rúmum 6,9 milljörðum á þriðja ársfjórðungi sem er um 15% minna en á öðrum ársfjórðungi og um 35% minna en á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Heildarútlán sjóðsins nema því rúmum 24,4 milljörðum það sem af er árinu 2009 en það eru um 51% minni útlán en á sama tímabili árið 2008.

Á þriðja ársfjórðungi bárust 658 umsóknir vegna greiðsluerfiðleika sem eru um 35% færri umsóknir en á öðrum ársfjórðungi. Á fyrstu níu mánuðum ársins hafa alls borist 2485 umsóknir sem er aukning um 439% frá sama tímabili ársins 2008. Úrræði vegna greiðsluvanda eru samningar, skuldbreyting vanskila, frestun á greiðslum, lenging lána og greiðslujöfnun. Frá því að sjóðurinn fór að bjóða upp á greiðslujöfnun fasteignaveðlána hafa verið afgreiddar 506 slíkar umsóknir.
Heildarvelta íbúðabréfa í september nam tæpum 83 milljörðum sem er 17% minni velta en í fyrra mánuði. Heildarvelta bréfanna nemur rúmum 712 milljörðum það sem af er árinu 2009. Ávöxtunarkrafa íbúðabréfa lækkaði nokkuð í september eða um 15 til 24 punkta eftir flokkum.
Hinn 30. september tilkynnti Íbúðalánasjóður að ekki yrði farið í útboð á þriðja ársfjórðungi. Í júlímánuði birti Íbúðalánasjóður endurskoðaða áætlun um útlán, útgáfu og greiðslur sjóðsins fyrir árið 2009. Þar var gert ráð fyrir að gefa út íbúðabréf að fjárhæð 7-9 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi ársins. Útlán sjóðsins hafa verið minni á þriðja ársfjórðungi en gert var ráð fyrir og hefur lausafjárstaða sjóðsins verið góð á tímabilinu. Endurskoðaðar áætlanir Íbúðalánasjóðs verða birtar í byrjun októbermánaðar.
Hinn 23. september birti matsfyrirtækið Moody's uppfærða skýrslu um lánshæfismat Íbúðalánasjóðs. Nánar má lesa um lánshæfismatið í skýrslu Moody´s á www.ils.is.
Breyting varð á auðkenningu við greiðslumat og umsókn lána hjá Íbúðalánasjóði. Nú þurfa viðskiptavinir sjóðsins að auðkenna sig með veflykli RSK eða rafrænum skilríkjum til að gera greiðslumat og sækja um lán. Öryggi viðskiptavina verður mun meira en áður.