Fasteignamarkaðurinn í Reykjanesbæ september 2009

08.10.09

Fjöldi þinglýstar kaupsamninga um fasteignir í Reykjanesbæ í september 2009 var 16. Þar af voru 10 samningar um eignir í fjölbýli, 5 samningar um eignir í sérbýli og 1 samningur um annars konar eign. Heildarveltan var 314 milljónir króna og meðalupphæð á samning 19,6 milljónir króna.

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs tæpir 3 milljarðar í september.

08.10.09

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmlega 2,9 milljörðum króna í september. Þar af voru rúmir 1,8 milljarðar vegna almennra lána og tæpir 1,1 milljarðar vegna leiguíbúðalána. Heildarútlán sjóðsins jukust því um tæp 84% frá fyrra mánuði sem má að mestu rekja til aukningar í leiguíbúðalánum.